Nú er ég einn heima í viku þar sem Sandra hefur þurft að bregða sér til Íslands vegna veikinda ömmu sinnar. Það kemur örugglega til með að vera dálítið einmannalegt í kotinu. Ég er þess vegna bara fegin að skólinn sé að fara á fullt á mánudaginn. Það verður nóg að gera.
Um helgina byrjaði ég að æfa mig. Maður verður aðeins að koma sér í gang þar sem ég er nú að fara í einkatíma hjá Ulf Bandgren, gítarkennara skólans, á morgun. Það er fín aðstaða þarna í skólanum þannig að ég hugsi að ég æfi mig mest þar. Djassdeildin hefur sína hæð og er flestar stofur með trommusetti og öllum græjum þannig að það ætti að vera auðvelt að fá herbergi til að æfa sig eða með samspili. Bókunarkerfið virkar þannig að það er blað fyrir utan stofuna sem maður skrifar sig á en maður má reyndar ekki bóka lengur en þrjá tíma í senn í sömu stofu. Það þægilegasta er að allir eru með læsta skápa. Þar geymi ég gítarana mína og annað dót sem ég þarf ekki að taka með heim. Í gær fór ég semsagt að æfa mig um tvö leitið , mér tókst reyndar að semja lítið lag í leiðinni, sérstaklega ánægjulegt.
Síðan fór ég að hitta Krissa og Margréti niðrí bæ. Þeir sem þekkja ekki til þá erum við að tala um Kristmund Guðmundsson trommuleikara Angurgapa og Moskvitch og hans frú. Þau eru einnig að læra hér í Svíaveldi. Við fórum og fengum okkur að borða og fórum svo á smá pöbbarölt. Ég fór með þau á Linnégatan þar sem bjórinn er aðeins ódýrari en gengur og gerist. Þar kostar hann 29 kr. en yfirleitt kostar hann 40-50 kr. Við fengum okkur nokkra öl og svo var haldið heim á leið um miðnætti. Mér sýnist Svíar ekki vera nærri því eins öflugir á djamminu og Íslendingar. Það voru ansi margir á leiðinni heim um miðnætti í gær. Þeir byrja reyndar fyrr en ég er ekki sannfærður um að þeir séu jafn lengi að. En allavega þá er ég á leiðinni niðrí skóla að æfa mig...
sunnudagur, ágúst 28, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Magnað þetta bókunarkerfi!
Skrifa ummæli