í gær var í farið í garð sem heitir Slotskogen. Þar var spilað brenni, sem er þjóðaríþrótt Svía, drukkið öl og grillað. Mjög róleg og fín stemmning bara. Eftir það var síðan farið á Stagedoor sem er eiginlega svona offical pub skólans. Þar var mikið fjör og mikið gaman. Gerðist svosem ekki mikið í dag nema það að ég þurfti að spila nokkra vel valda frasa á gítarinn fyrir allan skólann. Það var þannig að nýnemar hafa verið að undirbúa atriði hjá nett geggjuðum kennara í skólanum. Þetta atriði inniheldur söng og dans. Síðan bað kennarinn þá tónlistarmenn sem geta impróvíserað að rétta upp hönd. Svo einkennilega vildi til að ég var sá eini sem að rétti upp hönd og lenti því í því að taka gítarsóló yfir pentatónískan spuna mannkórsins. Til að gefa ykkur betri hugmynd um hvernig þetta hljómaði bendi ég á Hilliard ensemble með norska saxófónleikaranum Jan Garbarek. Þetta atriði var síðan flutt fyrir alla nemendur og kennara skólans í dag. Þá vita allir hver blessaði íslenski gítarleikarinn er...
Síðan fékk ég stundatöfluna og líst svona líka bara feiki vel á hana. Tveir tímar á mánudögum, þrjú samspil, einn tími og fundur á þriðjudögum, miðvikudögum er frí nema það séu fyrirlestrar, fimmtudögum er einn tími og á föstudögum frí. Semsagt nóg tími til að æfa sig og spila með félögunum. Við tókum okkur nokkrir til í bekknum og töldum í nokkur vel valin lög og ég get alveg fullyrt það að þetta eru bara ansi klárir spilarar.
Ég man ekki hvort ég var búin að segja eitthvað frá bekknum en í honum er allavega tveir trommarar, tveir kontrabassaleikarar, tveir gítaristar, saxófóngella, trompetleikari, básúnuleikari og síðast en ekki síst ein söngkona. Mér finnst sérstaklega gaman að það sé stelpa á saxófón enda ekki á hverjum degi sem maður sér það.
Nýjar myndir.
Hej då...
miðvikudagur, ágúst 24, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
SNILLD! :-)
Skrifa ummæli