Þá er netið komið í lagi hér á Tyghusvägen og bara töluverð hamingja sem fylgir því. Síðan er veðrið búið að vera ótrúlega gott. Í dag var sól og 27 stiga hiti. Ekki hægt að kvarta yfir því. Í gærkvöldi fórum við Sandra á smá djamm. Byrjuðum á því að fá okkur kvöldmat og öl á vinalegum pöbb. Síðan röltum við um bæinn og litum inn á nokkra staði. Enduðum síðan á stað þar sem við sátum úti og gátum drukkið bjór á aðeins 29 krónur sænskar eða um 245 krónur íslenskar. Okkur fannast svona hálf dapurlegt að vera bara ein á djamminu þannig að við urðum hreinlega að komast í kynni við fólk. Sandra brá því á þann leika að spyrja stúlku við hliðina á okkur út í það hvernig næturstrætóinn gengi fyrir sig. Síðan leitt eitt af öðru og áður en ég vissi af voru þær komnar í hörku samræður. Síðan færðum við okkur yfir á borðið til þeirra og fleiri bættust við. Við hittum m.a. sellóleikara sem er í tónlistarháskólanum og er vinkona Hauks Gröndal. Hún er kona bassaleikara hljómsveitarinnar Ródent sem áðurnefndur Haukur er partur af. Svona er nú heimurinn lítill...
Svo erum við komin með myndasíðu,kíkið endilega á!!!
laugardagur, ágúst 20, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Magnað!
Skrifa ummæli