föstudagur, júlí 07, 2006

þriðjudagur, júlí 04, 2006

Góð helgi!

Síðasta helgi var mjög skemmtilega. Fór í veiði í dölunum með Elmari og Tryggva. Áin var að vísu fisklaus með öllu en það kom ekki í veg fyrir að við skemmtum okkur vel.
Á morgun er svo ferðinni haldið til Kaupmannarhafnar þar sem ég kem til með að hitta Krissa og fara á nokkra jazztónleika, m.a. með Pat Metheny, John Scofield og Herbie Hancock. Meira um það síðar...

mánudagur, júní 26, 2006

Langar nætur!

Það er óhætt að segja að helgin hafi verið mesta djammhelgi Íslandsdvölarinnar. Það var farið út á lífið og ég endaði með því að vera í bænum til sex bæði kvöldin. Það var svosem nógu að fagna því Dagur Bergsson hélt afmælisveislu á föstudaginn og vinkonunur mínar, Steinunn og Camilla, voru að útskrifast úr HÍ. Annars hitti ég fullt af skemmtilegu og hressu fólki í bænum. Gummi Pí spurði mig m.a. af því hvort ég væri búin að fara í sund í Gautaborg. Svo sagði hann mér að Gautaborg hafi verið síðasta vígi sameiginlegra sturtuklefa. Sjálfur bjó hann í Svíþjóð fram að tíu ára aldri og var þá góssentíð sænskra félagsfræðirannsókna. Ein rannsóknin var tilraun með sameiginlega sturtuklefa. Svíum er svosem trúandi til alls...

fimmtudagur, júní 22, 2006

Vertíð

Líf mitt þessa dagana gengur að mestu út á vinnu. Ég er að kenna á námskeiði í GÍS og er yfirleitt að frá 14 til 21.20 á kvöldin. Eftir þennan tíma er svosem ekki mikil orka eftir en ég hef þó aðeins afrekað að hitta fólk. Nú er fullur undirbúningur fyrir veiðiferð ársins sem ég mun fara í með æskufélögunum Elmari og Tryggva fyrstu helgina í júlí. Það felur í sér að fara út á Miklatún og æfa fluguköstin. Nú svo eru bara 13 dagar í að ég fari með Krissa á jazzhátíðina í Kaupmannahöfn.

mánudagur, júní 19, 2006

Tónleikar í Noregi

Um helgina spiluðu Laser í Noregi, annarsvegar í Oslo og hins vegar í Sandefjord. Tónleikarnir heppnuðust mjög vel og var ótrúlega gaman að hitta þá félaga í Laser. Í Oslo gistum við hjá bróður mínum og var tekið vel á móti okkur þar. Þau buðu liðinu í grill í góða veðrinu og svo var Ingó auðvitað með þegar við spiluðum á Spasibar. Það var gaman að koma í Sandefjord sem er heimabæ Jo og spila þar. Daginn eftir tónleikana fórum við svo í langan göngutúr í skóginum og að hafinu. Það var ótrúlega gott að koma úr rigningunni á Íslandi og í 25 stiga hita og sól í Noregi.









föstudagur, júní 09, 2006

Home sweet home

Nú er ég búin að vera á Íslandi frá því á sunnudaginn. Einstaklega ljúft að koma í foreldrahús. Er byrjaður að kenna á sumarnámskeiði hjá GÍS sem er bara fín tilbreyting . Er einnig búin að kaupa mér mánaðarkort í Laugum. Við Tryggvi er búnir að taka þetta með krafti og fara í spinning í hádeginu. Við erum að tala um Beach 2006. Svo eru Laser að spila í Noregi eftir rúma viku...

miðvikudagur, maí 31, 2006

Luxembourg

Nú er ég komin aftur til Gautaborgar eftir nokkra daga heimsókn til systur minnar sem býr í Lux. Fór í heilmikið ferðalag með fjölskyldunni. Fórum til Frakklands, Þýskalands, Sviss og Ítalíu. Það var ansi fallegt í svissnesku Ölpunum og svo ég tali nú ekki um Ítalíu. Fórum í bæ sem heitir Como og er í kringum vatn. Fjöll allt í kring og mörg hús sem eru byggð í fjallshlíðinni. Sólskin og 30 stiga hiti. Yndislegt alveg! Kom svo heim í gær með tollinn og hélt partí í 18 fermetra herberginu mínu, ca. 1 fermeter á mann. Bauð upp á pólskan vodka. Allar 5 flöskurnar kláruðust!!! Pauli man ekki neitt og ein stelpa "sofnaði" frammi á gangi. Bauð svo þeim sem voru eftir lifandi upp á eðal kaffi úr nýju espresso vélinni minni.



mánudagur, maí 15, 2006

Heimasíða Laser

Laser er komin með heimasíðu. Check it out!

föstudagur, maí 12, 2006

Dave Holland

Fór á tónleika með Dave Holland á Nefertiti. Snilldar tónleikar og brillíjant band. Eins og mátti búast við var ekki eitt einasta lagi í 4/4. Mikið um 5, 7. 11 o.s.fr. Í bandinu voru ásamt honum Chris Potter á sax, Robin Eubanks á básúnu, Steve Nelson á víbrafón og Nate Smith á trommur. Ég er ekki frá því að Potter sé besti saxófónleikari í heimi!

þriðjudagur, maí 09, 2006

Sól og sumar

Hér er heldur betur komið sumar. Sól og yfir 20 stiga hiti alla daga. Helstu fréttir eru þær að ég spilaði á dúó tónleikum með Pauli í skólanum á mánudaginn. Rafmagnsgítar með tilheyrandi effectum og saxófónn með distortion og octave pedal. Svo er ég að vinna fyrir mér þessa dagana með því að spila á götunni með Pauli og Moritz (kontrabassi). Til þess að það væri mögulegt þurfti ég að kaupa mér þennan litla magnara sem gengur fyrir batteríum.

miðvikudagur, apríl 26, 2006

Kaupa kaupa kaupa!

Gat loksins leyft mér að kaupa nokkra hluta sem eru búnir að vera lengi á óskalistanum. Keypti mér þessa snilldar sænsku hátalara sem ég fann í lítilli skran búð. Svo keypti ég mér prentara/skanner og þennan fína octave pedal. Gott ef ég er ekki bara nýr maður á eftir.





fimmtudagur, apríl 20, 2006

Gamli góði Kurt!

Búin að vera á ferða og flugi. Var á Íslandi um síðustu helgi. Yndislegt að hitta fjölskylduna og borða páska lambið. Á morgun er ég á leiðinni til Stokkhólms að hitta Tryggva vin minn. Við ætlum m.a. annars á tónleika með Kurt Rosenwinkel á Fasching á laugardaginn. Á morgun er ég líka að fara að taka upp demo með Laser. Erum byrjaðir að plana aðra tónleikaferð til Finnlands í ágúst. Svo er aldrei að vita nema við förum til Íslands að spila næsta haust.

mánudagur, apríl 10, 2006

Tónleikaferð um Finnland!

Nú er ég loksins komin heim eftir tveggja vikna ferðalag um Finnland með Laser. Er búin að spila á átta tónleikum og halda fjögur "workshop" í Helsinki, Kuopio, Tampere og Porvoo. Búin að búa í sumarhúsi í miðjum skóginum, í húsbíl og hjá ýmsum vinum Pauli. Einnig búin að baða ansi oft í saunu, velta mér allsber upp úr snjónum og svo aftur inn í saunu. Það var a.m.k. ein sauna á hverju heimili. Svo er alltaf gaman að koma heim eftir langt ferðalag og sofa í sínu rúmi.

Hér eru nokkrar myndir

mánudagur, mars 27, 2006

Hádegistónleikar

Á morgun er hádegistónleikar með Laser í tónslitarskólanum til að hita upp fyrir komandi Finnlandsferð. Tónleikarnir eru mill 12 og 13 í Ensamblesalen ef einhverjum langar til að kíkja.

sunnudagur, mars 26, 2006

Ferðalangur

Skrapp til Molde á laugardaginn til þess að spila í íslenskri messu. Fallegur bær sem liggur í firði á vesturströnd noregs. Náði að heimsækja bróðir minn og fjölskyldu í leiðinni. Alltaf gaman að heimsækja þau í Osló.








Myndirnar eru teknar með nýja þriðju kynslóðar símanum mínum, Nokia 6280.

sunnudagur, mars 19, 2006

föstudagur, mars 17, 2006

Pang Band

Komin heim eftir skemmtilega ferð til Stokkhólms með Pang Band.





miðvikudagur, mars 08, 2006

Heimsókn

Nú er heilsan orðin betri og bjart framundan. Í næstu viku fer ég til Stokkhólms að spila á Fasching. Þar sá ég einmitt Kurt Rosenwinkel fyrst spila, sumarið 2004, í þá gömlu daga.
Á morgun koma æskuvinir mínir, Elmar og Tryggvi, í heimsókn og munu eyða hér næstu dögum. Það verður gaman að fá þá félaga í heimsókn.


Þessa mynd má rekja aftur til Búðardals áranna. Hér hefur Tryggvi með tölvutækni gert tilraun til að láta Elmar líkjast gömlum manni.

föstudagur, mars 03, 2006

Æjæjæj

Af hverju virðast allir í heiminum ætla á After Work og í eitthvað stórkostlega skemmtilegt partí einmitt þegar ég er veikur heima???

miðvikudagur, mars 01, 2006

Ég hef verið alveg einstaklega latur við að blogga og efast um að nokkur lesi þessa síðu lengur. Dagur Bergsson píanósnillingur er í Gautaborg og ætlar í inntökupróf hér á landi. Hann fór með mér í íslenskar bolludagsbollur í gær hjá Sigrúnu og Nikka. Það er hér með staðfest að Sigrún gerir bestu bollur í Gautaborg.

miðvikudagur, febrúar 22, 2006

laugardagur, febrúar 18, 2006

Sco!



"Rakst" á skemmtilegt kennslumynband með John Scofield á netinu. John Scofield on Improvisation. Mæli með þessu mynbandi fyrir þá sem er að pæla í jazzspuna. Svo er maðurinn bara svalur, með skegg og flott gleraugu.

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Afslutningsfest på Brew House!

Nú gefst ykkur kæru Gautaborgurum að sjá lokatónleika Hyokin á þessu ferðalagi okkar.
Allsherjar fagnaður verður í Brew House, Åvägen 24 á laugardaginn kl. 20.00. Aðeins 20 kr inn og öl á 20 kr.
Sjáumst þar!

mánudagur, febrúar 06, 2006

Dear old Stockholm

Spiluðum á Sæhestinum í gær. Vorum ánægð með mætingu og stemmningu. U.þ.b. 50 manns mættu, þar af 6 góðir íslendingar. Það var óvænt að sjá Krístínu Bergsdóttur mæta á svæðið enda er hún flutt heim til Íslands. Af öðrum stjörnum má nefna tvo af meðlimum hljómsveitarinnar Hjálmar. En hvað þetta er lítill heimur...

miðvikudagur, febrúar 01, 2006

Norrland

Nú hef ég komið til Norðu Svíþjóðar. Mjög fallegt og endalaus skógur. Svíjarnir sem eru með mér í ferð gera mikið grín af norðlenska hreimnum sem ég treysti mér þó ekki til að leika eftir. Frá því á mánudaginn erum við búin að keyra 1000 km...

sunnudagur, janúar 29, 2006

Tóleikaferð Hyoukin!


Þriðjudagur 31. jan: Bollnäs Folkhögskola
Miðvikudagur 1. feb:Gävle Musikgymnasium
Fimmtudagur 2. feb: Dagcenter, Stockholm
Föstudagur 3. feb: Kulturama Musikgymnasium, Stockholm
Sunnudagur 5 feb: Sjöhästen kl. 21:00, Stockholm
Mánudagur 6. feb: Betel Folkhögskola
Þriðjudagur 7. feb: Spasibar kl. 21:00, Oslo
Miðvikudagur 8. feb: Norges Musikkhögskole, Oslo
Fimmtudagur 9. feb: Donnergymnasiet, Göteborg
Laugardagur 11. febrúar: Brew House, Göteborg

mánudagur, janúar 23, 2006

Laser á Brötz

Laser spilar á tónleikum á Brötz á miðvikudaginn 25.janúar:

Brötz/Now på Konstepidemin vid Linnéplatsen, onsdagar kl 20. Entré 40 kr,
säsongskort 200 kr.

LASER
skandinavisk mix som spelar sketen swing och groovebaserad jazz med
avstickare till freebag.
Pauli Lyytinen (sax, Finland), Siggi Rögnvaldsson (gitarr, Island), Jo
Berger Myhre (kontrabas, Norge), Andreas Werliin (trummor, Sverige)
Husband: MIGRÄN
Improvisationer på etnovis.

sunnudagur, janúar 15, 2006

Sænsk Semla!

Tók forskot á bolludaginn og fékk að smakka sænska Semlu. Nammi namm namm. Hún er dalítið frábrugðin íslensku bollunum og er með möndlukjarna í miðjunni. Hún er borðuð einu sinni á ári á svo kallaða fettisdeginum sem er sami dagur og sprengidagur. Spurning hvernig þessi færi með saltkjötinu og baununum?

Skóli

Á morgun byrjar skólinn aftur eftir langt jólafrí. Gott ef ég er ekki bara fegin að byrja aftur. Vinnualkinn byrjaði þó að æfa sig fyrir nokkrum dögum síðan...

föstudagur, janúar 13, 2006

Sinfóníutónleikar

Skellti mér aldrei þessu vant á sinfóníutónleika. Sinfóníhljómsveit skólans lék verk eftir Sibelius og Igor Stravinsky. Verkið eftir Sibelius var ekkert sérstaklega eftirminnilegt en verkið eftir Stravinsky var mjög flott. Svíarnir kalla verkið Våroffer en á ensku mun það heita The rite of the spring. Hvað myndi þetta verk kallast á íslensku?

sunnudagur, janúar 01, 2006

Viðburðarríkt ár!

Jæja, þá er nýtt ár gengið í garð.

Árið 2005 einkennist af miklum breytingum í mínu lífu. Ég tók stefnuna á framhaldsnám í tónlist og í byrjun janúar sótti ég um þrjá skóla í Svíþjóð. Í mars var svo haldið í þriggja vikna ferðalag til þess að þreyta inntökupróf í þessum skólum sem voru í Gautaborg, Malmö og Ingesund. Síðan var beðið eftir niðurstöðum úr inntökuprófunum. Ég beið nokkuð rólegur þar sem ég gerði mér ekkert frekar von um inntöku þar sem hver skóli tekur inn 1-2 gítarleikara á hverju ári. Það var síðan mikil gleði þegar í ljós kom að ég hafði fengið inngöngu í alla skólana. Gautaborg varð síðan fyrir valinu eins og flestir vita.

Enn óvæntari breytingar urðu á mínu lífi þegar þriggja ára sambandi okkar Söndru lauk. Erfiðleikarnir byrjuðu í sumar en svo var þetta endanlega búið úti í Svíþjóð.

Dvölin í Gautaborg hefur verið mjög lærdómsrík. Ég hef kynnst mörgu góðu fólk og eignast nýja vini. Á nýju ári bíða spennandi verkefni sem ég hlakka til að takast á við.

Gleðilegt nýtt ár!

þriðjudagur, desember 27, 2005

Óvænt jólaboð

Ég og Egill (píanó) ætluðum að skella okkur í sund í dag. Við vorum bara aðeins of seinir því að þegar við mættum rétt fyrir 18 var að fara að loka. Í staðin ákváðum við að koma við hjá Steina (tónskáld). Þar duttum við inn í jólaboð hjá fjöldskyldunni og var ekki tekið í mál að við færum án þess að stoppa. Við vorum bara settir við hljóðfærin á heimilinu og upp hófst mikill söngur. Sungin voru jólalög og dansað í kringum stofuborðið. Ég verð að segja að þetta er óvæntasta uppákoma sem ég hef lent í lengi. Mikið fjör og mikið gaman.

fimmtudagur, desember 22, 2005

Malus



Kíkið endilega á tónleika Malus fimmtudaginn 22. desember og föstudaginn 23. desember. Eðal jólastemmning. Aðgangur ókeypis...

fimmtudagur, desember 15, 2005

Haldið heim!

Eins og oft vill verða rétt fyrir jól er búið að vera mikið að gera og mikið stress. En nú er allt að verða klárt og ég legg af stað heim á morgun.

Á síðustu dögum fór ég í tíma hjá nýjum gítarkennara sem heitir Mattias Windemo. Ég er búin að heyra mikið talað um hann hér og er hann af flestum talið mikið gúrú. Ég sá hann líka spila á tónleikum það sem hann spilaði free jazz á hljóðfæri sem kallað er stickbass, með 5 gítarstrengjum og 5 bassastrengjum. Þetta var ansi magnað að sjá og heyra. Ég held að það séu nú ekki margir á íslandi sem þekki til hans nema þá helst Kiddi og svo sagði Windemo mér reyndar að Steini(gítarleikarinn í hjálmum) hafi verið að læra hjá honum. Allavega þá er þetta alveg frábær gítarleikari og miðað við fyrsta tíman það held ég að hann sé mjög góður kennari líka.

Sóló konsertinn heppnaðist vel. Það var þvílíkt spennufall eftir tónleikana. Leið og ég var búin og fór að slaka á varð ég alveg dauðþreyttur. Það var helmingurinn af bekknum sem hélt tónleika á mánudagskvöldinu og síðan seinni helmingurinn á miðvikudagskvöldinu. Eftir seinni tónleikana fór bekkurinn allur út saman. Það var ótrúlega næs. Rætt var um liðna önn og síðan klappaði fólk hvort öðru á bakið fyrir góða frammistöðu.

Nú verð ég að geyma eitthvað til að geta sagt ykkur þegar ég kem heim.
Hlakka til að hitta ykkur!!!

miðvikudagur, desember 07, 2005

Lokaspretturinn!

Nú styttist heldur betur í að ég komist heim í jólafríið. Mér er farið að hlakka rosalega mikið til að koma heim, hitta alla og taka því rólega. Síðustu helgi var aðventuhátíð í kirkjunni það sem unglingakórinn minn söng Bjart er yfir Bethlehem. Þær voru reyndar tvær sem komustu ekki þannig að þær voru bara þrjár en þær vildu samt láta slag standa og stóðu sig eins og hetjur. Síðan spilaði ég eitt lag sjáflur og eitt með Söndru.
Annars er ég bara í skólanum frá morgni til kvölds þessa daganna. Næsta mánudag er nefnilega lokaverkefni annarinnar sem er sólókonsertinn. Eftir það er svo bara að byrja að pakka, versla jólagjafir og koma mér jólaskapið...

fimmtudagur, desember 01, 2005

Frábær endir á góðum degi!

Í gær átti ég afmæli. Dagurinn var nokkuð langur og mikið að gera en þrátt fyrir það tókst mér að gera mér dagamun. Um tíu leytið var þeim sem vildu stefnt á pöbb á Linnégötunni í tilefni dagsins. Það kom alveg hellingar af fólki bæði, bæði félagar úr skólanum og mínir kæru íslensku vinir. Það var því sunginn bæði sænski og íslenski afmælissöngurinn. Takk fyrir kvöldið!

miðvikudagur, nóvember 30, 2005

föstudagur, nóvember 25, 2005

The big night!

Dagurinn í dag hefur farið í að undirbúa partíið sem er í kvöld. Ég og Moritz byrjuðum daginn klukkan 10.00 á innkaupum og síðan var farið í að skreyta. Íbúðin er núna ofhlaðin jólaskrauti, búið að breyta sjónvarpinu mínu í diskóljós og ég veit ekki hvað og hvað. Núna eru tuttugu mínútur í að fjörið hefjist með After Work á Eva's Paley. Myndir birtar síðar...

mánudagur, nóvember 21, 2005

Helgin

Nú má segja að það sé í raun og veru komin vetur hér í Gautaborg. Það er allavega skítkalt!!! Sérstaklega seint á kvöldin. Heppilegt að ég er alltaf svona vel klæddur eða þannig.
Um helgina fór ég út að borða á þessum fína kínverska veitingastað með Krissa, Moritz og Nikka og Sigrúnu. Margir muna kanski eftir Moritz af myndum úr innflutningspartíinu í Kviberg. Hann er allavega hressasti þjóðverji sem ég hef nokkurn tíman hitt. Næsta föstudag ætlum við Moritz að halda saman risa partí í íbúðinni minni. Jibbíííí!!! Eins og flestir þjóðverjar þá hefur hann gaman af því að skipuleggja og verður því örugglega boðið upp á eitthvað skemmtilegt.
Nú tókst loksins að setja hér saman íslenskan barnakór og var ég með fyrstu æfinguna um helgina. Mér líst mjög vel á þetta. Ótrúlega duglegir krakkar. Ég tók mig til og útsetti jólalag í tveimur röddum sem við munum jafnvel flytja á jólaballi Íslendingafélagsins. Fínt tækifæri til að æfa sig í að útsetja aðeins fyrir kór.

föstudagur, nóvember 18, 2005

Lifandi!

Ég sé að einhverjir eru farnir að kvarta yfir því að ég hafi ekki bloggað í nokkra daga. Ég hef síður nennt því þar sem að ég er ekki með netið heima og kem ekki til með að hafa það fram að jólum.
Síðustu helgi skrapp ég til Oslo til þess að hitta foreldra mína og að sjálfsögðu bróðir minn og fjölskyldu. Alltaf notalegt að hitta fjöldskylduna, borða góðan mat og slappa af. Ég er að átta mig á því að núna er bara mánuður þangað til ég kem heim í jólafrí. Það verður gaman að koma heim og hitta alla vini og kunningja. Aldrei að vita nema ég spili einhverja tónleika með Autoreverse og Malus. Annars er alltaf nóg að gera. Er í hinum og þessum böndum sem fara vonandi að snapa einhver gigg. Eitt af þessum er svona popp/grúv með söngvara sem heitir Janne. Hann er svartur og er með svona ekta Stevie Wonder rödd. Erum að spila m.a. Stevie Wonder lög og allskonar lög í svipuðum stíl ásamt frumsömdu efni eftir Janne.

Lífið er lag...

föstudagur, nóvember 11, 2005

Bill Frisell og Brad Mehldau

Ég verð aðeins að minnast á þessa tónleika sem ég sá síðustu daga. Fyrst ber að nefna Bill Frisell tríó sem auk hans var skipað fiðlustúlku og lapsteel gítarleikara. Ég ætla að spila á svoleiðis ef ég endurfæðist í Nashville. Tónleikarnir komu skemmtilega á óvart. Ekki vegna þess að ég átti ekki vona á góðum hlutum frá Frisell heldur vegna þess að eingöngu voru leikin Bítlalög.



Ég sem hélt að ekki væri hægt að toppa þessa tónleika en það tókst Brad Mehldau næstum því. Ég ætla svosem ekki að gera upp á milli þeirra en hér var um frábært tríó að ræða. Mehldau hlýtur bara að vera með betri píanóleikurum í dag.

fimmtudagur, nóvember 10, 2005

Ný íbúð

Hef ekki bloggað í smá tíma þar sem ég er ekki enn komin með netsamband í nýju íbúðinni. Á mánudaginn síðasta flutti ég og var Raggi nágranni svo almennilegur að redda stórum bíl í flutningana. Auk þess voru Pauli, Moritz, Nikki og Krissi til aðstoðar. Að íslenskum sið bauð ég þeim upp á pizzu og bjór á eftir. Ekki að spyrja að því að kassinn kláraðist fljótt.

Strákarnir í stuði:



laugardagur, nóvember 05, 2005

föstudagur, nóvember 04, 2005

Hitt og þetta og alls ekki neitt!

Búið að vera ósköp rólegt þessa vikuna. Það var vetrarfrí í skólanum þannig að ég hef haft nógan tíma til að æfa mig. Mér finnst ég virkilega hafa komist í gang með æfingarnar þessa vikuna. Búin að vera meira og minna í skólanum frá morgni til kvölds og er bara ansi ánægður með það. Á morgun fer ég til bróðir míns í Osló og spila þar í kirkjunni á sunnudaginn. Næst fáið þið fréttir af tónleikum Bill Frisell og Brad Mehldau og gott ef ég verð ekki komin með nýja íbúið. Bless í bili.

sunnudagur, október 30, 2005

Tékkitt

Hmmm... Rakst á þennan link á netinu af algjörri tilviljun. Um er að ræða Bítlalagið She's leaving home í flutningi Brad Mehldau. Algjör snilld!!! Fyrst og frems vegna þess að lagið er svo flott. Ef þið fílið lagið kaupið þá diskinn ;)

föstudagur, október 28, 2005

Af daglega lífinu!

Undanfarið þá virðist ég ekki hafa sagt frá neinu örðu en tónleikum. Það er reyndar yndislegt allt þetta framboð af tónleikum. Ég má reyndar til með að segja ykkur frá tveimur öðrum sem ég er að fara á.

Þann 6. nóvember þegar ég spila í íslensku kirkjunni í Osló þá eru tónleikar þar um kvöldið með engum öðrum en gítarsnillingnum Bill Frisell. Þvílík heppni að hann skuli spila sama dag og ég verð þar. Ég er ekkert smá ánægður með það. Nú á ég bara eftir að reyna að sannfæra bróðir minn um að koma með.

Þann 8. nóvember mun ég svo fara á tónleika með Brad Mehldau tríó í Helsinborg sem er í u.þ.b. tveggja klukkustunda fjarlægð frá Gautaborg. Hópferð verður farin með rútu á þessa tónleika og verður m.a. góðvinur minn Kristmundur Guðmundsson með í för. Ég er eins og gefur að skilja mjög spenntur fyrir þessum tónleikum enda nýja platan hans frábær. Þar tekur hann m.a. Radioheadlagið Knives out og Bítlalögin Martha my dear og She's leaving home.

En þá að daglega lífinu. Í gær var ég í mjög skemmtilegu matarboði hjá Sigrúnu og Nikka. Ásamt okkur voru þar Krissi og tvær stúlkur sem búa í sama húsi og þau. Önnur þeirra er reyndar í skólanum með Sigrúnu. Ég endaði með því að missa af síðasta vagni og gista á dýnu hjá þeim. Það verður ekki þörf á því mikið lengur að stóla á sporgvagninn til að komast heim því að þann 7. nóvember mun ég flytja í nýja íbúð. Hún er á stærstu stúdentagörðum Gautaborgar í 10 mínútu göngufæri við skólann og miðbæinn. 42 fermetrar, með eldhúsi og svölum. Engin smá lúxus. Nú er bara að passa på og koma í heimsókn. Ég hélt lengi vel að þessi frasi þýddi að passa sig og olli það þó nokkrum misskilningi. Þetta þýðir í rauninni kýldu á það, sem er nokkuð fjærri því sem ég hélt...

mánudagur, október 24, 2005

Skyndiákvörðun

Ákvað á síðust stundu að skella mér á tónleika með Chick Corea ásamt hljómsveit Paco De Lucia í Konserthuset. Var svo heppin að það var sæti laust á fremsta bekk beint fyrir framan flygilinn. Þvílík heppni, annars hefði ég þurft að vera lengst uppi eða lengst til hliðar. Þetta voru alveg þvílíkt flottir tónleikar. Engin smá latinsveifla hjá bandinu sem var skipað trommuleikara, bassaleikara, slagverksleikara, saxófón- og þverflautuleikara ásamt Chick á píanó og rhodes. Þeim var vel fagnað í lokin og ætlaði allt að verða vitlaust þegar þeir tóku Spain sem uppklappslag. Ég sá sko ekki eftir því að hafa skellt mér.

sunnudagur, október 23, 2005

Ánægjulegir tónleikar

Tónleikarnir í Röhssku á laugardaginn heppnuðust bara mjög vel. Fullt af fólki og mikil stemmning. Þetta var líka mjög skemmtilegt húsnæði. Nokkuð stórt svið og svona leikhúsa sæti.

Eftir var síðan partí heima hjá Pauli sem endaði svo með því að farið var á fest í skólanum.

Smá hljóðdæmi af tónleikunum sem ég tók upp með tveimur mækum inn á elsku makkann minn:

G

Halv special


Hér má sjá nokkrar myndir af tónleikunum:





miðvikudagur, október 19, 2005

Samspilstónleikar

Í gær spilaði ég með svo kallaða mánudagssamspilinu mínu. Á tónleikunum spiluðu alls sex samspil og voru tvö lög á hvert band. Þetta gekk bara mjög vel, við spiluðum eitt lag eftir mig og eitt eftir Pauli. Það var mjög gaman að sjá öll hin samspilin því það voru svo margir sem maður hefur aldrei séð spila áður.

Lífið gengur sinn vanagang, er svosem ekki að gera mikið annað þessa dagana en að sinna skólanum. Búin að vera að æfa dálítið mikið undanfarið með hinum og þessum m.a. fyrir tónleika sem ég er að spila með tríói á laugardaginn. Tónleikarnir byrja kl. 15.00 og eru í Röhsska museet fyrir þá sem vilja skella sér til Gautaborgar á tónleika...

mánudagur, október 17, 2005

Kólnar í veðri

Nú er heldur farið að kólna hér í Gautaborg. Fínt veður á daginn, svona 10-15 gráður, en það er orðið ansi kalt snemma á morgnana og seint á kvöldin. Þá þýðir náttúrulega ekkert annað en að fara snemma að sofa og vakna seint.

Fór í bíó í gær með Pauli, fórum á Charlie and the Chocolate Factory. Verð að viðurkenna að ég hef ekki lesið bókina en mér fannst myndir alveg frábært. Hló mjög mikið. Skemmtileg tónlistaratriði og umhverfi.

Annars er ég byrjaður að undirbúa 20 mínútu sóló tónleika sem ég á að halda í skólanum í byrjun desember. Fyrsta skipti sem ég mun spila svona lengi einn. Er að semja stykki að þessu tilefni, sem mun einnig innihalda einhvern spuna. Mjög skemmtilegt og spennandi verkefni. Af öðrum æfingum þá er ég búin að vera að "pikka" upp sóló á fullu eða planka eins og Svíjarnir kalla það. Hef eiginlega ekki gert það af viti mjög lengi. Það er líka mjög gaman. Er m.a. búin að pikka upp sóló eftir Chet Baker, Pat Martion og Peter Bernstein. Getur tekið ansi langan tíma að ná að spila það vel með disknum. Held hreinlega bara að það sé hægt að læra heilmikið af þessu.

miðvikudagur, október 12, 2005

Ísland - Svíþjóð

Aldrei þessu vant þá horfði ég á fótboltaleik. Skellti mér á Stage door til að horfa á leikinn á risaskjá með kaldan öl á kantinum. Tvær íslenskar stúlkur bættust í hópinn. Það voru þær Guðný og Gróa sem eru hér í viku frá Listaháskólanum til að taka þátt í Sinfoníuhljómsveit skólans (SNOA). Ísland tapaði 3 -1 þannig að ég fór grátandi heim.

Í gær var ég svo á fyrirlestri hjá sænsku gítarhetjunni Ulf Wakenius. Mikil chops og mörg blús lick.

Á morgun er svo clinic með einhverjum argentínskum píanoleikara og hans sveit. Nánar af því síðar...

sunnudagur, október 09, 2005

Löng vinnuhelgi

Um helgina fór ég með íslenska prestinum í Gautaborg og Sigrúnu, sem er með mér í sunnudagaskólanum, út á land með íslensku fermingarbörnin í Svíþjóð. Þar hittum við síðan norsku fermingarbörning og vorum því allt í allt yfir þrjátíu manns. Ótrúlega fallegt og gott veður í sænskri sveit. Vorum í timburhúsi við vatn með skóg allt í kring. Logn, 20 stiga hiti og sól alla helgina. Ekki alveg veðrið sem maður er vanur í október. Í ferðinni vorum við með kennslu, leiki, sundferð, kvöldvöku, fjöldasöng og margt fleira sem tilheyrir svona fermingarbúðum. Mjög skemmtileg ferð með skemmtilegu fólki. Toppurinn fannst mér að fá svona frábært veður. Lögðum svo af stað heim um hádegi í dag og mættum beint í sunnudagaskólann. Þetta var semsagt löng vinnuhelgi.

Í öðrum fréttum er það að eftir miklar pælingar keypti ég mér gítarmagnara. Ég var búinn að spá í því að láta senda magnarann minn hingað en þá hef ég engan magnara þegar ég kem heim um jólin eða næsta sumar. Ég fór í allar gítarbúðir í Gautaborg og prófaði fjöldan allan af Fender og Vox mögnurum. Magnarinn sem mér fannst lang bestur var engin annar en Bítlamagnarinn Vox AC30. Bresk gæðavara. Ótrúlega flott sánd og ekki skemmir fyrir að hann er líka mjög flottur. Mikil hamingja með þannan grip.

fimmtudagur, október 06, 2005

Rokkið lifir!!!

Var að koma af mögnuðum tónleikum með Steve Vai. Kallinn gaf ekkert ekkert eftir og spilaði á gítarinn af mikilli innlifun. Ekkert vantaði upp á pósurnar né klæðnaðinn. Hann mætti m.a. í tígrisbuxum og skikkju. Magnaðasti búningurinn var þó hjálmur og hanskar sem fest voru á leiserljós. Síðan var hann að sjálfsögðu með viftu sem blés um fagurt hárið. Svona vifta ætti náttúrulega að vera staðalbúnaður á öllum tónleikum.





þriðjudagur, október 04, 2005

Steve Vai!

Á fimmtudaginn fer ég á tónleika með gítarhetjunni Steve Vai. Fyrir þá sem ekki þekkja til kappans þá er þetta einn mesti shreddari allra tíma. Hann hefur eflaust slegið ansi mörg hraðamet í gítarleik. Sannkallaður íþróttamaður það!!! Hann hefur m.a. annars spilað með Frank Zappa og Whitesnake.
Ég veit það fyrir víst að þeir eru nokkrir kennarar í GÍS sem eiga eftir að dauðöfunda mig.

Eins og sannri gítarhetju sæmir þá hugsar hann vel um útlitið og hárið. Takið eftir smekklegu útlitinu!!!

laugardagur, október 01, 2005

Innflutningsfest!!!

Í gær var þrusu innflutningspartí. Margt var um manninn og mikil stemmning. Heiðursgestur var að sjálfsögðu Tryggvi Lárusson sem kom alla leið frá Íslandi og málaði bæinn rauðan. Pauli spilaði rassinn úr buxunum og Janne drapst fyrir miðnætti.

Hér má sjá myndir kvöldsins!!!

fimmtudagur, september 29, 2005

Ég fekk gigg!

Vei!! Fyrstu giggin eru í höfn. Ég mun spila í messu fyrir Íslensku kirkjuna í Osló þann 6. nóvember. Sérstaklega ánægjulegt þar sem bróðir minn býr þar og ég get því heimsótt hann í leiðinni. Svo mun ég einnig spila á listasafni sem heitir Röhska Museum þann 22. október með jazztríói. Vonandi er þetta það sem koma skal...

Annars mætir Tryggvi Lárusson, æskuvinur minn, til Gautaborgar á morgun. Hann kemur um þrjú leitið og verður dreginn beint á After work. Síðan verður haldið á Tyghusvägen þar sem við Sandra stöndum fyrir rosalegu innflutningspartí. Svo ætla ég að fara með drenginn í skoðunarferð á laugardaginn. Það verður eflaust farið í smá siglingu og kíkt í Liseberg. Allavega mjög skemmtileg helgi framundan.

mánudagur, september 26, 2005

Innflutningsparti ofl.

Um helgina var m.a. annars innflutningspartí hjá Önnu bekkjarsystur minni. Þrusu stemmning. Smellið hér til að skoða myndir.

Skólinn gengur sinn vanagang. Byrja í nýju samspili í næstu viku hjá Peter Burman þar sem unnið verður með rhytma. Næstu helgi verður svo innflutningspartí hjá okkur. Þar verður íslenskur leynigestur sem kemur auðvitað sérstaklega til að ná þessu partí...

föstudagur, september 23, 2005

fimmtudagur, september 22, 2005

Ég er í hljómsveit!

Í kvöld var æfing með hljómsveitinni. Í henni er Pauli (Finnland), Jo (Noregi) og Hjalmar (Svíþjóð) sem leysir af Andreas sem er í einhverju verkefni í Úkraínu (eða var það Ungverjaland???) sem stendur. Hér má líta á þessa myndarlegu ungu menn.



Æfingin gekk rosalega vel. Spiluðum Vitlök með Siggi sem er alveg rosalega fyndið lag. Verð að leyfa ykkur að heyra það síðar. Annars bendi ég bara nóturnar sem finna má neðar á síðunni.

miðvikudagur, september 21, 2005

Æfa, æfa, æfa!!!

Lesendur góðir. Ég hef ekki verið nógu duglegur að blogga undanfarið. Ég hef komið frekar seint heim á kvöldin og þá nenni ég því ekki. Annars gengur bara mjög vel hérna í Gautaborg. Ég er að komst vel í gang og búin að vera duglegur að æfa mig undanfarið. Ég er eiginleg mest búin að æfa mig á píanóið. Mig langar til að getað notað það til að semja. Svosem búin að vera að semja eitt og eitt lag og spila með hinum og þessum. Í kvöld eru svo tóneikar á Brötz...

sunnudagur, september 18, 2005

Vitlök med Siggi!

Maður vikunnar!

Ég hef ákveðið að þessu sinni að velja mann vikunnar og er það engin annar en finnski skiptineminn Pauli Lyytinen. Þennan heiður fær hann fyrir að hafa ótrúlega hvetjandi áhrif á mig. Hann æfir sig 8-12 klukkustundir á hverjum degi og semur í leiðinni 2-3 lög. Það er honum að þakka að í dag æfði ég mig frá tvö til miðnættis.



Þetta er annars búin að vera frábær helgi. Fór í partí í gær og afrekaði það að borða hálfan ferskan hvítlauk. Mæli ekki með því, það var ótrúlega vont. Fékk geðveikan verk í eyrun og í magann á eftir. Hvað kom til? Jú þetta byrjaði þannig að Moritz var eitthvað að mana mig í einhverskonar keppni. Venjulegum lauk var skipt í tvennt og svo áttum við að borða hann án þess að tárast. Við gerðum það báðir með léttum leik. Síðan var einhver sem skipti hvítlauk í tennt. Við tókum báðir við honum en horfðum bara hvor á annan. Hvorugur okkar var tilbúin til að taka af skarið. Þá reif Pauli hvítlaukin af Moritz og skellti honum í sig. Ég gat auðvitað ekki verið minni maður og lék sama leik. Ekki reyna þetta heima krakkar mínir.
Í dag samdi Pauli lagið Vitlök með Siggi...

fimmtudagur, september 15, 2005

Hvað er að gerast!

Á þriðjudaginn fórum við Sandra í bæinn með íslenska parinu í húsinu okkar. Þau heita Elín og Ragnar og eru mjög hress.

Hér má sjá mynd af þeim eftir bæjarferðina.


Á miðvikudaginn fórum við með Krissa á tónleika með þessum manni. Hann heitir Charles McPherson og spilar á saxófón. Ég tók ansi margar myndir af honum en hann virðist bara ekki geta verið í fókus.



Í gær gerðist sá undarlegi hlutar að klukkan eitt um nóttina hringdi í mig ung stúlka úr skólanum í miklu uppnámi. Afleiðingin var sú að þegar Sandra vaknaði í morgun svaf stúlkan í svefnsófanum hjá okkur. Hvað get ég sagt, það er gott að leita til mín á erfiðum tímum. Ég hef ekki enn komist að því hvað amaði að greyið stúlkunni eða hvers vegna hún leitaði til mín.

Á morgun verður svo farið á After work. Þýskur skiptinemi í skólanum á afmæli. Myndir birtar síðar...

miðvikudagur, september 14, 2005

Klukk, ég er'ann!!!

1.Fæddist í Reykjavík 30. nóvember 1980 á sunnudegi kl. 11.00 þegar kirkjuklukkurnar hringdu.

2. Uppáhaldsmaturinn minn er nautafille, léttsteikt auðvitað.

3. Fyrsta hljómsveitin sem ég var í hét Svart og hvítt. Hljómsveitin var stofnuð af Elmari og tveimur félögum hans. Mér þótti þetta mikill heiður þar sem ég var tveimur árum yngri en þeir og var boðið pláss í hljómsveitinni þar sem ég kunni laglínuna í Poplag í G-dúr.

4. Ég stúdera gítarleik og annað tónlistartengt í Gautaborgarháskóla. Ég er búin að vera að spila á gítar meira og minna í 14 ár. Síðustu ár hef ég ekki verið í nokkrum vafa um hvað ég ætla að gera þegar ég verð stór.

5. Ég er örverpi og er ánægður með það. Ég á tvö frábær eldri systkyni sem ég get ávalt leitað til. Ingólfur (31) er læknir og er í sérnámi í næstu stórborg, Osló. Anna (34) býr í Luxemburg og rekur þar stórheimili auk þess að vera mjög virk í félagslífinu. Það verður ekki sagt of oft hversu mikið ég lít upp til þeirra beggja.


Ég klukka Steina, Nóa, Wufnik , Fríðu og Elmar.

þriðjudagur, september 13, 2005

Kirkjunar störf

Næstu helgi hefjum við störf okkar hjá íslensku kirkjunni í Gautaborg. Um er að ræða annars vegar að stjórna íslenskum barnakór og hins vegar að hjálpa til í kirkjuskólanum við undirspil og annað. Ég fór í dag og fjárfesti í kassagítar fyrir kirkjuna sem ég kem til með að nota þar. Í tilefni dagsins birti ég hér mynd af gítarnum og hljóðdæmi . Það er tekið upp í eldhúsinu mínu með innbyggða hljóðnemanum á makkanum mínum. Ef vel er hlustað má heyra tölvuna mala og ýmis önnur aukahljóð...

sunnudagur, september 11, 2005

Líf og fjör i Kaupmannahöfn

Í gær var ég í kaupmannahöfn á kynningu á íslensku efni fyrir kirkjuskólann. Eins og þið vitið kannski ekki þá erum við Sandra að taka við íslenskum barnakór í Gautaborg og aðstoða í kirkjuskólanum. Svo var auðvitað farið út að borða með liðinu. Fyrsta skipti sem ég hef farið á djammið með prestum. Ég get sagt ykkur það að þeir gefa sko ekkert eftir þegar það kemur að næturlífinu. Í kvöld voru Pauli frá Finnlandi og Jo frá Noregi í mat hjá okkur. Boðið var upp á risotto og kjúkling og
espresso og súkkulaði í eftirrétt. Mycket roligt!!!

fimmtudagur, september 08, 2005

Sofnaði á Brötz

Skemmtilegt kvöld í gær. Krissi kom í mat til okkar. Alltaf ánægður að koma í pössun á Tyghusvägen. Síðan fór ég með strákinn á tónleika á Brötz. Hljómsveit húsins hóf leikinn og svo var aðalnúmerið tríó sem samanstóð af trompetleikara, gítarleikara og trommuleikara. Þetta greip mig ekki betur en það að mér tókst að sofna á miðjum tónleikunum. Var eitthvað óvenju þreyttur. Kannski að bjórinn og rauðvínið hafi haft einhver áhrif, ég skal ekki segja. Ég var miður mín yfir þessu atviki og skammaðist mín. Krissi sagði hins vegar að það hafi litið út fyrir að ég væri að hlusta af mikilli innlifun. Þarna slapp ég fyrir horn...

þriðjudagur, september 06, 2005

A day in a life!!!

Hér gefst einstakt tækifæri til að fylgjast með heilum degi í lífi Sigga

Sætur og fínn!

Ný komin úr klippingu. Hárið á mér var að sjálfsögðu blásið að sænskum stíl. Taka verður fram að ekki var beðið sérstaklega um þá þjónustu.

sunnudagur, september 04, 2005

A weekend in Oslo!!!

Á fimmtudaginn fór ég að heimsækja bróður minn og fjölskyldu í Osló. Ég fór með rútu sem var bara ágætt, rúmgóð sæti og ekki nema þrjá tíma og fjörtíu mínútur á leiðinni. Þegar ég kom um til þeirra um kvöldið, svangur og einmanna, beið mín 200 gr. hamborgari. Ég verða að viðurkenna að hann toppaði Nettó borgarann. Helgin var annars mjög ljúf. Við röltum mikið um bæinn með krökkunum, skoðuðum hitt og þetta, drukkum gott kaffi og borðuðum fleiri hamborgara. Síðan elduðu þau hverja dýrindis máltíðina á fætur annari. Halla og Röngvaldur, frændsystkyni mín, voru í miklu stuði. Þau voru með stanslaus skemmtiatriði fyrir mig og gott ef þau halda bara ekki svolítið upp á frænda sinn. Ég skemmti mér allavega konunglega. Eitt er öruggt að ég kem ekki léttari heim úr þessari ferð. Nú fer ég að taka fram skokk skóna...

Ég læt myndirnar tala sínu máli!

fimmtudagur, september 01, 2005

Tónleikar á Brötz

Í gær fóru ég á ansi skemmtilegan tónleikastað sem heitir Brötz. Hann gefur sig út fyrir að vera aðalega free jazz staður en það er svosem ýmislegt spilað þar. Hilmar Jensson spilaði þar í fyrra með tríóinu sínu. Í gær sá ég ansi magnaðan dúett með trommuleikara og söngkonu sem er meira að segja par sem skemmir auðvitað ekki fyrir. Þetta kom rosalega vel út hjá þeim, alveg stórskemmtilegt. Eftir tónleikana fórum við svo nokkur á pöbb. Þar á meðal félagi minn Pauli, sem er finnskur skiptinemi. Hann er búin að biðja mig um að vera með sér í free hljómsveit ásamt norskum skiptinema frá Osló sem heitir Jo og trommuleikaranum sem lék á þessum tónleikum sem heitir Andreas. Hér er því um samnorræna hljómsveit að ræða. Pauli vill svo endilega að við förum til Finnlands og spilum nokkra tónleika þar. Örugglega mjög gaman ef af því verður. Eins og sannur Finni þá var Pauli mjög öflugur í drykkjunni. Hann pantaði gjarnan tvo bjóra í einu og var helmingi fljótari að drekka en við hin fyrir utan það að hann var greinilega búin að skjóta á sig þegar ég hitti hann fyrir tónleikana. Kvöldið endaði svo þannig að ég var einn eftir með honum og var svo ekki komin heim fyrr en klukkan þrjú. Var svo auðvitað að deyja úr þreytu í skólanum í morgun...

En nú fer ég að leggja í hann til Osló til að heimsækja minn kæra bróðir.
Bless í bili...